Færsluflokkur: Bloggar
13.3.2008 | 18:30
Afhverju er þetta svona !!!
Ég veit eiginlega ekki hvar ég á að byrja, við erum með alþingishús fullt af fólki sem þykist vita allt. Maður er að sjá allskonar pólitíkusa gaspra í fjölmiðlum og blogga á netinu um sínar skoðanir. Auðvitað er það í lagi en þegar maður heyrir þá tala um eitthvað sem þeir vita ekkert um þá líta þeir ílla út. Þetta getur auðvitað verið klaufalegt þegar fólk fær ekki að skýra út sína hlið málsins þegar spyrlar í sjónvarpinu gefa þeim ekki tíma til. En er það afsökun ??? Nei, það held ég ekki. Það er um að gera að minna þá hver borgar launin þeirra.
Þjóðfélagið er alltaf að bíða eftir hvað þingmenn gera fyrir okkur almúgann. Við erum alltaf tilbúnir til að leggja okkur fram til að passa rauðastrikið svo verðbólgan fer ekki af stað. Allir alþingismenn tala um sparnað til að passa rauðastrikið, hverjir þurfa að spara, jú ég. Hvað eru þeir tilbúnir að gera, ekki mikið, eitt létt verk eins og hefur komið áður fram er að lækka gjöld á dísel bílum og olíu. Bara það hjálpar okkur kolviðajafna landið. Ef þeir reyna að stýra þessu að flestir kaupi díselbíla. Ég er með díselbíl og kostnaður við áfyllingu fór úr 120 krónum per lítra í 150 krónur. Bílinn tekur 90 lítra sem þýðir 2.700 krónur úr mínum vasa. Þetta ætti að vera auðvelt fyrir þá að laga þetta. Þetta ætti vera gott fyrir sparnað hjá ríkinu þar sem bílafloti þeirra er ekki lítill.
Síðan er það heitasta málið í dag, lögreglan. Við erum hrikalega ílla stödd með lögregluna, það vill ekki neinn vinna þetta starf og heldur fólk að það breytist eitthvað þegar fólk má ráðast á þá og sleppa svo við dóm. Við þurfum að laga þetta í snatri ef við ætlum ekki að vera bara með foreldrarölt í miðbænum. Stefán Eiríksson lögreglustjóri þarf að þramma með lið sitt á austurvöll og sýna þeim hversu alvarlegt málið er. Það dugir ekki að ræða við Björn Bjarnason, hann lætur ekki heyra í sér á þingi um þetta mál og virðist ekki vera inní þessu hversu alvarlegt mál þetta er orðið. Hann er kannski bara að hugsa um sérsveitina sína. En því miður þá dugir það ekki.
Ég hlusta alltaf á bylgjuna á morgnana og hlusta á Heimi og Kollu, mér þótti hrikalegt að heyra Atla Gíslason segjast frekar bíða eftir að lögreglumaður falli í starfi en að vopna lögregluna. Mér þætti gaman að sjá hann segja þetta þegar hann er í svona aðstöðu eins og lögreglumenn. Spurning, eigum við að hætta að þróa öryggi fyrir alla starfsmenn í landinu þangað til að þeir falli í starfi. Ætli Atli hafi ekki hugsað neitt þegar hann var að svara þessu. En er það gott að alþingismaður hugsi ekki neitt þegar hann talar? nei , það held ég ekki
Guðmundur
Bloggar | Breytt 14.3.2008 kl. 08:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2008 | 13:11
Kompás í gær.
Ég kom heim eftir að hafa pöbbast til að sjá Inter vs Liverpool og kompás var í gangi. Þátturinn var hálfnaður eða svo og það er greinilegt að þjóðin er að velta fyrir sér hvernig þetta mál fór svona. Það er komið útlendingahatur út af þessu og segir sagan að útlendingarnir eru farnir að hafa áhyggjur hvað gerist í framhaldinu. Ég hugsaði það sem kom fram í þættinum að það er alltaf sagt þegar slæmt er í fréttum að það var pólverji, letti sem var valdur af þessu en aldrei sagt að það hefði verið íslendingur. Mér finnst það svo sem ekki skipta máli hvaða þjóðar brotamaðurinn sé, aðallega að kerfið taki á þessu. Það er alveg greinilegt að það er mikil brotalöm á þessu og það er valla lögfræðingur á landinu sem er ekki að setja út á kerfið. Það er auðvitað hrikalegt að þetta mál sem var í kompás í gær breytist frá slysi í sakamál sem er ekki einu sinni hægt að gera neitt við. Þetta er eitthvað sem verður að laga með lögum eins og fólk er að ræða að sá sem á bílinn og tryggir hann sé alltaf bótaskyldur þar til hann geti sannað annað. Þetta hljómar hrikalega einfalt. Ég sendi foreldrum samúð mína og vonast til þess að þessi barátta fái þá sem geta lagað til í lagaflækjunni geri eitthvað í málinu. Það er nóg að þetta gerist einu sinni og það er meira segja einu sinni of oft.
Kveðja
Guðmundur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2008 | 21:16
Verslunin krónan ....
Ég hef alltaf verið duglegur að fara í matvöruverslanir til að versla inn fyrir heimilið. Í dag var það á mínum herðum að elda fyrir peyjana meðan konan var að raka inn fé fyrir heimilið. Ég var frekar seinn til að fara í bónus þannig að ég fór í krónuna upp á höfða (húsgagnahöllin). Það var svo sem ekki merkilegt sem ég keypti í matinn en allir voru sáttir við það. En það óvænta í þessu var við kassann sem maður greiðir fyrir allt dótið. Þá eru þeir komnir með sjálfsafgreiðslu við kassann. Mér þótti þetta spennandi og fór að skanna inn vörurnar sjálfur meðan starfsmaðurinn sem var að vakta þetta leiðbeindi mér á þetta. Ég var nú fljótur að reyna á kerfið og ætlaði mér að stela, það var snilldin við þetta að ég reyndi öll brögð við þetta og komst að því að kerfið vissi betur. Það er einhver vigt sem finnur hvort varan var skönnuð inn eða ekki. Síðan getur þú ekki skannað og sleppt að setja ofan í pokann, þú verður að fara eftir öllum leikreglum. Mér sýndist þeir vera með 4 svona kassa og 1 starfsmaður var að vakta þetta. Síðan verður maður að afhenda starfsmanninum afrit af miðanum. Ég verð að viðurkenna að ég treysti því ekki að þetta lækki matar reikninginn á heimilinu. Mér finnst líka að það megi sleppa að rukka fyrir pokann þar sem ég farinn að vinna alla vinnuna. Mér finnst að allir ættu að prufa þessa græju.
Ég tek ofan fyrir Krónunni með þetta og á eftir að fara þarna oftar og sérstaklega ef þetta lækkar verðið á körfunni.
mbk
Guð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2008 | 15:44
Bankar !!!
Núna er ekki friður fyrir bönkum þegar fer að kreppa að. Núna hafa þeir ekkert annað að gera nema hringja í viðskiptavini sína og jafnvel annarra banka. Það er kominn kreppa og þeir lána ekki peninga þannig núna er þeir að biðja mann að spara peninga og dæla þá inn í bankana. Hvernig getur það gengið upp þar sem skuldir íslendinga eru að aukast. Ég skipti um viðskiptabanka fyrir nokkrum árum síðan en ég er en þá að fá símtöl frá þeim gamla og jafnvel er ég að fá fleiri þaðan en frá mínum viðskiptabanka í dag. Manni þykir þetta skrýtið að sjá gamla bankann bjóða eitthvað sem hann gat ekki gert þegar ég óskaði eftir því á sínum tíma. Það sem pirrar mig lang mest er að sjá alla banka að bjóða einhverja afslætti í búðum eða bíóhúsum landsins, mér finnst að þeir ættu að einbeita sér að lækka gjöld fyrir þjónustuna. Við erum að greiða fyrir millifærslu á milli banka, það er verið að rukka fyrir upplýsingar í síma og það er verið að rukka fyrir sms upplýsingar. Hvernig væri að ég sem viðskiptavinur fái eitthvað fyrir að vera svona góður strákur að borga allt á réttum tíma og nota debetkortið svo þeir fái greiddar krónur fyrir hverja færslu. Um daginn var minn viðskiptabanki að breyta lögum vegna korta og þegar fólk var að fá þessar upplýsingar heim og þá var það ekki lesið. Það var ekki fyrr en fjölmiðlar komust í málið að bankinn gafst upp og ákvað að hætta við þetta. Afhverju þarf þetta að komast í fréttir til að nauðga ekki viðskiptavininum. Ég óska eftir að allir sendi fjölmiðlun þegar bankar og önnur fyrirtæki eru að gera eitthvað af sér og biðja stöðvarnar að fara í saumana.
Guðmundur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2008 | 18:30
Okur í bíó !!!!!
Ég fór í bíó með peyjana til að sjá "Underdog". Hef ekkert að setja útá myndina sjálfa, bara svona venjuleg barnamynd sem þau hafa gaman af. Mér þykir aðeins og mikið að borga 2.000 kall fyrir okkur í bíó. Strákarnir eru 3 (almost 4 eins og hann segir oft) og 9 ára og svo ég. Verðið var 450, 650 og 900 kall. Strákarnir fara ekki einir í bíó þannig að fullorðinn verður að fara með. Alla vega með þeim minni. Þessi 2.000 kall er ekki með nammi innifalið sem leggst ofan á allt saman. Ég fór bara á nammibarinn hjá Hagkaupum (50% afsláttur). Það kostaði mig 600 kall með gosi (nammi handa mér líka ) Ég verð að viðurkenna það að ég myndi fara oftar í bíó ef verðið væri ekki svona dýrt, þetta er nefnilega mjög gaman fyrir peyjana og þetta bitnar mest á þeim. Það var tómur salur sem sýnir að verðið er alltof hátt, þannig að það rúmaði vel um gestina. Þarna voru komnir Dr.Gunni og sonur, Heiðar í Botnleðju (leikskólakennarinn á leikskólanum hans Enoks) svo eitthvað sé nefnt.
Ef ég tek þetta saman, þá er þetta ábending til bíóhúsa að lækka verðið til að taka pening inn á magninu en ekki með háu verði.
Guð
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2008 | 13:28
Ísland í dag....þáttur sem er á stöð 2 alla virka daga.
Þessi ágæti þáttur er alltaf stútfullur af efni, en því miður þykir mér þetta farið að vera frekar sýnishorna þáttur en þáttur sem fjallar virkilega um hlutina. Ég sá um daginn þegar borgarmálin voru til umræðu og voru fengin borgarfulltrúar til að ræða málin, því miður var málefnið of mikið fyrir svona stuttan þátt og hvað þá bara part af honum. Tíminn sem var gefin í þessa umræðu var það lítill að kynningin á gestum var lengri en umræðan (kannski of sterkt tekið til orða) þannig að fólk fékk ekki að klára að segja sitt álit á þessu. Auðvitað er ekki hægt að klára öll borgarvandamálin á 20 - 30 mínútum en alla gefa þeim meira en 5 mínútur. Þegar ég er að horfa á umræðu um pólitík þá vil ég fá meira af svörum en spurningum eftir þáttinn. Báðir þessi aðilar sem voru til umræða þarna litu út eins og vitleysingjar í mínum augum því þau náðu bara að muldra ofan í hvort annað með engum skýrum svörum við spurningum frá spyrli þáttarins. Auðvitað eru margir hlutir góðir og skemmtilegir en má samt gera betur.
Ef ég verð svo heppinn að Svanhildur Hólm lesi þetta, þá vona ég að hún taki þetta til sín sem stjórnandi á þessum þætti og breyti þessu til betri vegar.
Guðmundur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2008 | 13:04
Hvað getum við gert ???
Núna er kominn tími til að standa saman og gera eitthvað í þessu bensín/dísel verði. Ég var að keyra fram hjá Shell Laugavegi (næturvaktin). Per líter kostar 149,50 í sjálfsafgreiðslu (dísel), það munaði litlu að ég stoppaði bílinn og myndi ýta honum. Það var viðtal við framkvæmdastjóra N1 um daginn og hann sagði að þeir hafa verðið þannig að þeir fá 30 krónur fyrir per lítra til að reka sig. En það er næstum 120 kall til viðbótar sem ég skil ekki. Erum við að tapa glórunni í stjórnmálum eða eru þessir eigendur að ljúga að okkur með 30 krónurnar? Alla vega veit ég að Atlantsolía er ekki að lækka hjá sér og ekki er mikil yfirbygging þar. Það virðist vera alveg sama hvaða bensínrisi er hér á landi, þetta er allt eins. Ég var staddur á Flórída í febrúar og við vorum með bílaleigubíl og þurftum að taka á hann bensín, við tókum 101 líter og kostaði það 5.700 krónur og ég reiknaði það miðað við okkur þá kostaði það 14.050 krónur. Það eru allir brjálaðir í USA því að þetta er hátt hjá þeim. Ekki skil ég okkar mál því vegalengdirnar hjá þeim eru margfald meiri en hjá okkur. Núna óska ég eftir að fólk fari að mótmæla þessu af krafti og reyni að komast í alla fjölmiðla til sýna samstöðu.
Guð
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2008 | 11:44
Koma svo ..
Heyrði í útvarpinu í morgun að maður í Parma hafi lögsótt konuna sína vegna getuleysi hjá sér. Hans skýring var sú að hún nöldraði svo mikið að hann stressaðist upp og endaði með fyrr greindum afleðingum. Þetta er eitthvað sem við getum notað þegar konunar okkar eru farnar að ryksuga yfir boltanum eða byðja okkur að setja í þvottavél.
Ég mun fylgjast með þessu máli fyrir okkar hönd strákar.
Guð
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.3.2008 | 10:50
Ráðningaskrifstofur.
Þessi ágæta starfsgrein er frekar sérstök og þú sem ert að leita að vinnu þarft að vera með allt á hreinu. Ég er búinn að fara hringinn og skoða þessi fyrirtæki, það sem ég myndi gera núna ef ég færi aftur af stað þá tæki ég undirbúning mikið alvarlegri en ég gerði fyrst. Það allra helsta er að skoða sig sjálfan, þú þarft að vera búinn að spyrja þig allra spurninga sem þú mátt eiga von á þegar þú ferð í viðtölin, t.d hvar er þinn styrkur og veikleiki, hvernig þú sérð framtíðina og hver er þinn metnaður fyrir þetta fyrirtæki. Þeta er bara smá hluti og sumir aðilar njóta sín að koma með erfiðar spurningar. Síðan er það persónuleikapróf, puff það var leiðinlegt próf og guð sé lof að það getur ekki neinn fallið . Sumar skrifstofur eru að vinna vinnuna sína en aðrar ekki. Það borgar sig að vera alltaf vakandi á netinu og hringja í einhvern tengilið reglulega til að sýna áhuga hjá þér.
Síðan er það alltaf félagarnir....."veist þú um vinnu" það virkar líka.
Guð
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2008 | 12:22
Hún á afmæli í dag !!!!
Jæja, núna meiga allir sem þekkja til óska fallegustu konunni á mínu heimili til hamingju með afmælið, Þessi snót er 37 ára. Allir pakkar eiga að sendast til mín og ég kem þeim á framfæri. Því miður verður afmælisbarnið ekki heima fyrr en seinnipart kvöldsins.
Guð
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)