Vá, þetta gerist hratt

Ég var ekki fyrr búinn að sleppa orðunum um hversu rólegt væri hér á landi, engin mótmæli eða leiðindi í umferðinni.  Viti menn, það var allt vitlaust í gær og í enn meiri læti í dag.  Löggan farin að nota táragas og allskonar tól og tæki á blessuðu bílstjórana, eigum við kannski að kalla þá hryðjuverkamenn ????  Núna hlýtur einhver að vakna á þingi, spurningin er sú, verður það til að taka mark á vörubílstjórum eða fá löggugalla til að skjóta táragasi.  Ég spyr, er ég á Íslandi ???? Svona hrikaleg áttök vegna hluta sem ég tel alþingis menn geta lagað án sérsveitar.  Það þarf bara einhver að vinna heimavinnuna sína.

 Guðmundur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband